Hýsingarþjónusta
Basis rekur nýjan og fullkominn vélarsal á Íslandi. Salurinn var hannaður með það fyrir augum að lágmarka niðurtíma og hámarka öryggi. Salurinn er kældur með tveim aðskildum kælikerfum, N+1 varaafl á rafhlöðum ásamt því að vera tengdur við dísel varaaflstöð sem sinnir eingöngu salnum. Tveir ljósleiðarar eru tengdir inn í aðskildar símstöðvar. Fullkomið aðgangsstýringarkerfi er tengt stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar auk þess sem að sjálfstætt myndavélakerfi tekur upp allan sólarhringinn. Vélasalur Basis er hannaður og rekinn eftir ISO og PCI stöðlum. Basis hefur jafnframt reynslu af hýsingu erlendis og getur haft milligöngu um að útvega hýsingu nánast hvar sem er í heiminum.
Viðskiptavinir geta komið með eigin vélbúnað í hýsingu en fá þá jafnframt afnot af sameiginlegum samskiptabúnaði og nettengingum. Einnig er hægt að leigja öfluga blade- eða sýndarnetþjóna af Basis.
Kostir þess að hýsa tölvubúnað og/eða gögn hjá Basis eru meðal annars:
- Fastur fyrirsjáanlegur kostnaður
- Ekki þarf að leggja dýrmæta fermetra í verslunar- eða skrifstofuhúsnæði undir búnaðinn
- Enginn kostnaður við kælingu og varaafl
- Sparnaður í starfsmannahaldi þar sem allt eftirlit er í höndum Basis
- Fyrirtækið verður hreyfanlegra þar sem ekki þarf að flytja tölvukerfið þó skipt sé um húsnæði
- Meiri sveigjanleiki í rekstri
- Aðgengi að vottuðum sérfræðingum Basis
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

