Hýsing
Basis rekur eigin vélasal á Íslandi en hefur jafnframt reynslu af hýsingu erlendis og getur haft milligöngu um að útvega hýsingu nánast hvar sem er í heiminum. Vélarsalur Basis er búinn nýjum og öflugum kælibúnaði og varaaflgjöfum frá APC, öflugu myndavélaeftirliti sem skráir allar hreyfingar og atvik sem eiga sér stað ásamt því sem raka, hita og hreyfiskynjarar fylgjast stöðugt með öllum umhverfisþáttum. Bakvakt Basis sér um eftirlit allan sólahringinn, allan ársins hring. Viðskiptavinir geta komið með eigin vélbúnað í hýsingu en fá þá afnot af sameiginlegum samskiptabúnaði og nettengingum.
Viðskiptavinir geta einnig leigt öfluga Blade- eða sýndarnetþjóna af Basis.
Kostir þess að hýsa tölvubúnað og/eða gögn hjá Basis eru meðal annars:
- Kostnaður ljós fyrirfram.
- Ekki þarf að taka dýrmæta fermetra í verslunar- eða skrifstofuhúsnæði undir búnaðinn.
- Ekki þarf að leggja út í kostnað við kælingu og varaafl.
- Sparnaður í starfsmannahaldi þar sem eftirlit er í höndum Basis.
- Fyrirtækið hreyfanlegra þar sem ekki þarf að flytja tölvukerfið og leggja aftur út í kostnað við kælingu og varaafl þó fyrirtækið skipti um húsnæði.
- Meiri sveigjanleiki í rekstri.
- Aðgangur að vottuðum sérfræðingum.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

