Kerfisveita

Með kerfisveitu Basis færð þú aðgang að sameiginlegum kerfum og innviðum sem eru í rekstri allan sólahringinn, allan ársins hring. Þannig sparar þú upphafsfjárfestingu í miðlægum búnaði og lágmarkar rekstrarkostnað tölvukerfa þinna.

Helstu kostir kerfisveitu eru:

  • Aðgengi að öruggu vinnuumhverfi hvar sem er í heiminum
  • Sérfræðingar innan handar allan sólahringinn
  • Líftími útstöðva mun lengri
  • Engin fjárfesting í dýrum miðlægum búnaði
  • Örugg afritun og eftirlit með tölvukerfum
  • Meiri sveigjanleiki og aukin hagkvæmni
  • Fastur fyrirsjáanlegur kostnaður
  • Öflugar varnir gegn vírusum og öðrum vágestum

Sveigjanleg þjónusta

Basis leggur áherslu á að vinna með þér til að tryggja að þjónustan uppfylli þínar þarfir. Á daginn hefur þú fullan aðgang að þjónustuborði Basis auk þess sem neyðartilfellum er sinnt á bakvöktum allan ársins hring.

Um kerfisveitu

Allur hug- og vélbúnaður er í eigu Basis og geta viðskiptavinir fengið aðgang að heimasvæðum fyrir starfsmenn, viðskipta- hópvinnukerfum og vefjum í gegnum internetið eða eftir almennum gagnasamböndum. Innifalið í kerfisveitu er hýsing, rekstur og önnur dagleg umsjón með upplýsingakerfum viðskiptavinarins. Öll kerfi eru afrituð daglega og kostnaður vegna hugbúnaðarleyfa er innifalinn í mánaðargjaldi.

Helstu kostir nýrrar kerfisveitu Basis:

  • Kerfisveita Basis keyrir á nýjustu útgáfu af Microsoft Exchange (2010)
    • Skoðaðu póstinn hvar sem er (Outlook Anywhere)
      • Þú getur tengst póstinum þínum með öruggum hætti hvar sem er, hvenær sem er, án þess að þurfa að tengjast sérstaklega í gegnum VPN fjarvinnslutengingu.
    • Auðveldur aðgangur að póstinum hvar sem er, hvenær sem er, hvort sem er í gegnum tölvu eða farsíma.
  • Nýtt vefviðmót
    • Nýtt vefviðmót á tölvupóstinn fyrir þá sem hafa ekki aðgang að Microsoft Outlook. Nýja vefviðmótið gerir ekki kröfu um Internet Explorer vafrann fyrir fulla virkni eins og áður. Vefviðmótið er þægilegt í notkun og minnkar stórkostlega þörf notenda fyrir Outlook.
    • Gerðu allt sem þú þarft að gera í póstinum á vefnum.
  • Betri leit
    • Eftir því sem tíminn líður og tölvupóstum fjölgar verður erfiðara og erfiðara að finna þær upplýsingar sem þú leitar að. Aðgangur að öflugri leit í póstforritinu er eitt af mikilvægustu tólunum sem þú hefur til að finna upplýsingar fljótt og örugglega þegar þú þarft á þeim að halda. Í Exchange 2010 hefur leitin verið bætt til muna og er því auðvelt að finna það sem þú þarft að finna.
    • Leitið og þér munið finna.
  • Tímabundinn aðgangur að forritum
    • Ef þig vantar tímabundinn aðgang að Microsoft forritum eins og MS Visio eða MS Project þá er nú hægt að leigja aðgang að þessum forritum í einn mánuð í einu.
  • Heimasvæði og sameiginleg gagnasvæði
    • Fyrirtæki þitt fær aðgang að heimasvæði fyrir hvern starfsmann auk sameiginlegra gagnasvæða.
  • Fjarvinnsla
    • Fjarvinnsla (e. terminal services) er mun léttari í keyrslu en áður og er orðinn raunverulegur kostur á hægum nettengingum. Auk þess er viðmótið mun betra en áður á hraðari tengingum og er fjarvinnsla nú orðinn raunverulegur valkostur fyrir fyrirtæki sem vilja lágmarka útstöðvaþjónustu og fjárfestingu í þeim.
  • Örugg afritun
    • Öll gögn eru afrituð með öruggum hætti og í mörgum eintökum og því eru gögnin þín varin gegn hverskyns áföllum.
  • Leyfismál
    • Öll leyfismál eru á hreinu hvað varðar miðlægar þjónustur. Sérfræðingar Basis aðstoða þig við að velja bestu mögulega leyfissamninga fyrir annan hugbúnað.

 

Tengdar lausnir

 

Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.




Neðra val