Kerfisveita
Með kerfisveitu Basis fæst aðgangur að sameiginlegum kerfum og innviðum sem eru í rekstri allan sólahringinn, allan ársins hring, og um leið sparast upphafsfjárfesting í miðlægum búnaði.
Helstu kostir kerfisveitu eru:
- Aðgengi að öruggu vinnuumhverfi hvar sem er í heiminum
- Sérfræðingar innan handar allan sólahringinn
- Líftími útstöðva mun lengri
- Engin fjárfesting í dýrum miðlægum búnaði
- Örugg afritun og eftirlit með tölvukerfum
- Meiri sveigjanleiki og aukin hagkvæmni
- Fastur fyrirsjáanlegur kostnaður
- Öflugar varnir gegn vírusum og öðrum vágestum
Aðgangur að þjónustuborði er á dagvinnutíma en neyðartilfellum er sinnt á bakvöktum allan ársins hring. Allur hug- og vélbúnaður er í eigu Basis og geta viðskiptavinir fengið aðgang að heimasvæðum fyrir starfsmenn, viðskipta- hópvinnukerfum og vefjum í gegnum internetið eða eftir almennum gagnasamböndum. Innifalið í kerfisveitu er hýsing, rekstur og önnur dagleg umsjón með upplýsingakerfum viðskiptavinarins. Öll kerfi eru afrituð daglega og kostnaður vegna hugbúnaðarleyfa er innifalinn í mánaðargjaldi.
Dæmi um hugbúnað í boði í kerfisveitu Basis:
- Zimbra
- Exchange
- Sharepoint
- DK viðskiptahugbúnaður
- IP símkerfi
- SAP
- Navision
- MSSQL
- Oracle
- Pervasive
- MySQL
- PostgresSQL
- Ruslpóstsíur
- Vefsía
- o.fl. o.fl.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

