Neteftirlit

Miðpunktur í öllum góðum rekstri er rétt uppsett og vel rekið neteftirlitskerfi. Basis hefur langa reynslu og haldgóða þekkingu af Hobbit/Xymon neteftirlitskerfinu og hefur innleitt það fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins. Rétt uppsett og vel rekið eftirlitskerfi getur sparað fyrirtækjum mikinn tíma og útgjöld, aukið rekstraröryggi og hámarkað yfirsýn yfir umhverfið.

Tæknirekstraraðferð Basis byggir á fyrirbyggjandi aðgerðum í stað þess að slökkva elda jafnóðum og þeir koma upp.  Kjarninn í rekstri Basis er stöðugt eftirlit með lífsmörkum tölvukerfa og kerfisinnviða.  Vandlega völdum eftirlitskerfum hefur verið raðað saman og vinna sem ein heild við alhliða eftirlit með ástandi tölvukerfa og tæknibúnaðar. Samhliða eftirliti verða til söguleg gögn um hegðan kerfa sem skapa ráðrúm til að bregðast við stækkunarþörf og viðhaldi í tíma. Einnig afhjúpa söguleg eftirlitsgögn lúmskar endurteknar bilanir og skapa þá tækifæri til að leysa vandann með endanlegum hætti.  Reynslan sýnir að tæknimenn fá sterka tilfinningu fyrir lífstakti og samhengi kerfa og finna fyrr þegar vandamál láta á sér kræla.

Eftirlitskerfið er hægt að tengja beint við verkbeiðnakerfi fyrirtækisins. Þegar eftirlitskerfið skynjar frávik frá eðlilegu ástandi eða hegðan verða til verkbeiðnir með sjálfvirkum hætti. Kerfið getur einnig sent SMS skeyti, hringt í tæknimann og eða sent tölvupóst.  Þessi virkni tryggir að frávik fá formfasta og skráða meðhöndlun sem er rekjanleg frá upphafi til enda og úrlausnar. Algengt er að eftirlitskerfið sé stillt á að hringja sjálfkrafa í bakvaktarmann þegar um alvarleg frávik er að ræða og raddgerfill les villuboð. Vakthafandi bakvaktarmaður verður að kvitta fyrir móttöku símtals, að öðrum kosti hringir kerfið á 300 sekúnda fresti þar til kvittað hefur verið fyrir móttöku.

 

Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.




Neðra val