Open Source
Við hjá Basis vitum að enginn hugbúnaðarframleiðandi getur verið bestur í öllu og því er nauðsynlegt að hafa góða yfirsýn yfir hvaða valmöguleikar eru í boði. Notkun Open Source hugbúnaðar hefur verið að ryðja sér til rúms á undanförnum árum og eru ýmsir kostir mögulegir þar.
Því fer fjarri að allur Open Source hugbúnaður sé góður, eða jafnvel nothæfur, og því mikilvægt að þekkja vel til. Basis stærir sig af því að hafa úrval reyndra Linux og Unix sérfræðinga á sínum snærum, sem ráðleggja fúslega varðandi val á Open Source hugbúnaði og aðstoða við innleiðingu hans.
Basis sérhæfir sig í rekstri á miðlægum kerfum, stýrikerfum, sýndarvélaumhverfum sem byggja á Open Source (t.d. KVM og XEN) og hefur víðtæka reynslu af kröfuhörðum viðskiptavinum og rekstri á kerfum sem mega ekki fara niður (High Availabilty).
Ef markmiðin eru sparnaður, hagkvæmni, öryggi eða sveigjanleiki þá er Open Source mögulega lausn sem hentar þínu fyrirtæki, hvort sem er eingöngu eða í bland við annan leyfisskyldan hugbúnað. Basis hefur meðal annars hannað lausnir sem fela í sér samþættingu Linux og Microsoft stýrikerfa með góðum árangri.
Nánari skilgreiningu á Open Source hugbúnaði má finna hér og hér.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

