Rekstrarþjónusta

Basis býður uppá margskonar rekstrarþjónustu. Við leggjum áherslu á að fara yfir reksturinn í samvinnu við viðskiptavininn og finna þá lausn sem hentar honum best.

Kerfisveita Basis er góð lausn fyrir fyrirtæki sem vilja geta unnið í miðlægu kerfi með litlum tilkostnaði. Hún veitir aðgang að sameiginlegum kerfum og innviðum sem eru í rekstri allan sólahringinn, allan ársins hring, og um leið sparast öll upphafsfjárfesting í miðlægum búnaði.

Basis býður upp á alrekstur þar sem tölvurekstur fyrirtækisins er alfarið tekinn yfir, en er einnig með sértækari lausnir fyrir þá sem vilja áfram sjá um ákveðna þætti sjálfir. Þjónustan er í öllum tilfellum sniðin að þörfum viðskiptavina með öryggi og hagkvæmni að leiðarljósi.

Helstu kostir þess að nýta rekstrarþjónustu Basis eru meðal annars:

  • Fastur fyrirsjáanlegur kostnaður
  • Meiri hagkvæmni
  • Aukið rekstraröryggi
  • Aðgengi að vottuðum séfræðingum Basis
  • Sveigjanlegur rekstur
  • Sérsniðin þjónusta

Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.




Neðra val