Eldveggjalausnir
Basis er vottaður silfursamstarfsaðili (Silver Partner) fyrir Fortinet öryggislausnir á Íslandi. Fortinet framleiðir m.a. hinn margverðlaunaða FortiGate eldvegg sem getur í rauntíma borið kennsl á og eytt öllum helstu tegundum af þeirri óværu sem er í gangi á veraldarvefnum í dag, áður en hún berst inn á net- og tölvukerfi fyrirtækja. Sem dæmi um óværu má nefna vírusa, ruslpóst, óæskilegar vefsíður, innbrotstilraunir og margt fleira.
Meðal viðskiptavina Basis sem hafa innleitt Fortinet eldveggjarlausnir hér á landi má nefna fjármálafyrirtæki, símafyrirtæki, framleiðslufyrirtæki, þjónustufyrirtæki, læknastofur, lyfjaframleiðendur og fleiri aðila.
Þó svo að Basis sé sérstakur þjónustuaðili Fortinet þá sjáum við að sjálfsögðu líka um aðrar eldveggjalausnir.
Reynslusögur fyrirtækja af innleiðingu Basis á öryggislausnum:
Nánari upplýsingar um vöruframboð Fortinet má finna á heimasíðu þeirra www.fortinet.com. Einnig má hafa samband við Basis í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

