Kerfisveita
Kerfisveita Basis veitir þér greiðan aðgang að miðlægu upplýsingakerfi og tölvuumhverfi allan sólarhringinn, allan ársins hring. Þannig kemstu hjá töluverðum kostnaði við vélbúnað og hugbúnaðarleyfi og lágmarkar rekstrarkostnað við tölvukerfin. Innifalið í kerfisveitu er hýsing, rekstur og önnur dagleg umsjón með upplýsingakerfunum þínum.
Allur hug- og vélbúnaður er í eigu Basis og geta viðskiptavinir fengið aðgang að heimasvæðum fyrir starfsmenn, að viðskipta- og hópvinnukerfum og vefjum í gegnum internetið eða eftir almennum gagnasamböndum. Öll kerfi eru afrituð daglega og kostnaður vegna hugbúnaðarleyfa er innifalinn í mánaðargjaldi.
Helstu kostir kerfisveitu eru:
- Aðgengi að öruggu vinnuumhverfi hvar sem er í heiminum
- Sérfræðingar eru innan handar allan sólarhringinn
- Mun lengri líftími útstöðva
- Engin þörf á að kaupa dýran miðlægan búnað
- Örugg afritun og eftirlit með tölvukerfum
- Meiri sveigjanleiki og aukin hagkvæmni
- Fastur fyrirsjáanlegur kostnaður
- Öflugar varnir gegn vírusum og öðrum vágestum
Ný og endurbætt kerfisveita Basis býður upp á eftirfarandi:
- Nýjustu tólin. Kerfisveita Basis keyrir á nýjustu útgáfu af Microsoft Exchange (2010).
- Greiður aðgangur að póstinum hvar sem er, hvenær sem er, hvort sem er í gegnum tölvu eða farsíma með Outlook anywhere.
- Nýtt vefviðmót á tölvupóstinn fyrir þá sem hafa ekki aðgang að Microsoft Outlook. Nýja vefviðmótið gerir ekki kröfu um Internet Explorer vafrann fyrir fulla virkni eins og áður. Vefviðmótið er þægilegt í notkun og minnkar stórkostlega þörf notenda fyrir Outlook. Gerðu allt sem þú þarft að gera í póstinum á vefnum.
- Betri póstleit. Eftir því sem tíminn líður og tölvupóstum fjölgar verður erfiðara og erfiðara að finna þær upplýsingar sem þú leitar að. Aðgangur að öflugri leit í póstforritinu er eitt af mikilvægustu tólunum sem þú hefur til að finna upplýsingar fljótt og örugglega þegar þú þarft á þeim að halda. Í Exchange 2010 hefur leitin verið bætt til muna og er því auðvelt að finna það sem þú þarft að finna.
- Tímabundinn aðgangur að forritum. Ef þig vantar tímabundinn aðgang að Microsoft forritum eins og MS Visio eða MS Project þá er nú hægt að leigja aðgang að þessum forritum í einn mánuð í einu.
- Heimasvæði og sameiginleg gagnasvæði. Fyrirtæki þitt fær aðgang að heimasvæði fyrir hvern starfsmann auk sameiginlegra gagnasvæða.
- Fjarvinnsla (e. terminal services) er mun léttari í keyrslu en áður og er orðinn raunverulegur kostur á hægum nettengingum. Auk þess er viðmótið mun betra en áður á hraðari tengingum og því hentar fjarvinnsla vel fyrir fyrirtæki sem vilja lágmarka útstöðvaþjónustu og fjárfestingu í þeim.
- Örugg afritun. Öll gögn eru afrituð með öruggum hætti og í mörgum eintökum og því eru gögnin þín varin gegn hverskyns áföllum.
- Leyfismál. Öll leyfismál eru á hreinu hvað varðar miðlægar þjónustur. Sérfræðingar Basis aðstoða þig við að velja bestu mögulega leyfissamninga fyrir annan hugbúnað.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

