Microsoft

Hjá Basis starfa sérfræðingar á öllum sviðum Microsoft. Við leggjum mikla áherslu á að geta boðið upp á allar nýjustu lausnirnar sem hugbúnaðarframleiðandinn setur á markað og því keyrum við á þeim sjálf. Ef Microsoft hentar þínu fyrirtæki þá er Basis rétti aðilinn til að sjá um þjónustuna.
Basis er silfursamstarfsaðili Microsoft á sviðum hýsingar, borðtölva, netþjóna og þjónustuveitna fyrir fyrirtæki. Við leggjum ávallt ríka áherslu á að finna hagkvæmustu leiðina sem hentar viðskiptavinum okkar hverju sinni.
Basis hefur mikla þekkingu og reynslu af eftirfarandi hugbúnaðarlausnum sem tengjast hönnun, uppfærslum, flutningum, innleiðingum og daglegum rekstri; Active Directory, Exchange, Terminal Server, Sharepoint, Cluster og fleiri. Enn fremur starfa hjá okkur sérfræðingar á sviði Lync þar sem boðið er meðal annars upp á samþættingar við símkerfi.
Microsoft valdi nú á dögunum Basis sem einn af lykil samstafsaðilum sínum við að taka Office 365 í loftið hér á Íslandi. Sú lasun er bylting í vöruframboði hjá Microsoft, en hún býður uppá mun meiri hagkvæmni og sveigjanleika en þekkst hefur. Smelltu hér til að læra meira og sjá hvort „Skýið“ henti þér.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

