Office 365
Er Office 365 rétta lausnin fyrir þig?
Breyttir tímar kalla á nýjar lausnir og nú hefur Microsoft sent frá sér nýtt sett af fyrirtækjalausnum sem nefnast einu nafni Office 365. Lausnin leggur sérstaka áherslu á aðgengi, hagkvæmni og svegjanleika.
- Aðgengi - Fáðu aðgang að öllum gögnunum þínum hvar sem þú ert í heiminum (Sharepoint Online). Þú færð jafnframt aðgang hvar sem er inn í Office pakkann (Office Web Apps) og póstinn þinn (Exchange Online).
- Hagkvæmni - Þú velur þá þjónustuþætti sem hver og einn í fyrirtækinu þarf og greiðir eingöngu fyrir þá. Þú færð einnig aðgang að miðlægri umsýslu á öllum þínum kerfum og getur séð um þá þætti sem þú vilt.
- Sveigjanleiki - Talið og greitt mánaðarlega í stað árlega sem þýðir að þú getur breytt áskrift og fækkað/fjölgað notendum í hverjum mánuði.
Öll gögn eru geymd á miðlægum netþjónum Microsoft, „í skýinu“, sem þýðir að þau eru aðgengileg hvar sem er í heiminum, hvenær sem er.
Við hjá Basis gerum okkur grein fyrir að skýið hentar ekki öllum fyrirtækjum að öllu leyti. Þess vegna höfum við sett saman svokallaðar „hybrid“ lausnir sem nýta sér það besta úr skýinu en halda t.d. skrárþjónum, og þar með talið viðkvæmum og mikilvægum gögnum, innanlands eða jafnvel innanhúss.
Basis býður nú, í samstarfi við Microsoft, upp á frían reynsluaðgang að Office 365.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

