Öryggisafritun
Basis býður fyrirtækjum, smáum jafnt sem stórum, upp á öryggisafritun gagna. Ábyrgir stjórnendur gera sér grein fyrir mikilvægi afritunar, en því miður eru allt of margir sem uppgötva það ekki fyrr en of seint. Hægt er að afrita gögn í gegnum netið og vista þau hjá Basis. Þannig næst hámarks öryggi því ef um bruna- eða vatnstjón er að ræða hjá fyrirtækjum, er hætta á að afritin glatist með frumritunum ef þau eru geymd á sama stað.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

