Rekstur Tölvukerfa

Basis hefur víðtæka reynslu af rekstri tölvukerfa og rekur stór miðlæg tölvukerfi fyrir viðskiptavini sína í Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi. Með rekstri tölvukerfa býður Basis upp á að taka að sér slíkan rekstur fyrir viðskiptavininn óháð því hvort kerfið er hýst hjá Basis, samkeppnisaðila eða viðskiptavininum sjálfum. Rekstrarþjónusta getur falið í sér alrekstur þar sem séð er um allt sem viðkemur tölvukerfum fyrirtækisins, eða sértækari lausnir þar sem ákveðinn hluti kerfisins, t.d. afritun eða netkerfi er þjónustaður. Í þjónustunni felst m.a. að Basis sér um rekstur og eftirlit með netþjónum, staðar- og víðneti, útstöðvum og jaðartækjum.

Basis hefur lagt áherslu á að lágmarka áhættu viðskiptavina sinna af rekstrarstöðvunum með föstum þjónustusamningum, þar sem ekki er greitt sérstaklega fyrir útköll eða þann tíma sem fer í viðgerðir á kerfinu. Það er því hagur Basis að tryggja áfallalausan rekstur tölvukerfisins með fyrirbyggjandi aðgerðum, fremur en að slökkva elda jafnóðum og þeir koma upp. Viðskiptavinir geta því verið vissir um að hagur Basis sé samtvinnaður þeirra.

Helstu kostir þess að láta Basis sjá um rekstur tölvukerfis þíns:

  • Fastur fyrirsjáanlegur kostnaður
  • Aukið rekstraröryggi
  • Viðskiptavinurinn getur einbeitt sér að sinni kjarnastarfsemi
  • Aðgengi að vottuðum séfræðingum Basis

Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.




Neðra val