Um Basis
Basis er óháð þjónustu- og ráðgjafarfyrirtæki í upplýsingatækni. Við sérhæfum okkur í að aðstoða við rekstur tölvukerfa, allt frá því að vera bakland í flóknari verkefnum yfir í að sjá alfarið um hýsingu og rekstur tölvukerfisins. Meðal viðskiptavina Basis eru mörg af stærstu og öflugustu fyrirtækjum landsins á sviði fjármálaþjónustu, framleiðslu, hugbúnaðargerðar, verslunar og þjónustu ásamt fjölmörgum minni fyrirtækja sem byggja afkomu sína á öruggum rekstri tölvukerfa sinna.
Fyrirtækið hefur frá upphafi markað sér þá stefnu að vera náinn samstarfsaðili viðskiptavina sinna og lagt áherslu á óháða ráðgjöf með hag viðskiptavinarins að leiðarljósi. Með þessu móti getum við best þjónustað viðskiptavini okkar með því að veita þeim þjónustu og ráðgjöf óháð vörumerki.
Ef fyrirtæki eru háð vörumerkjum þá segir það sig sjálft að þau mæla með sínum eigin vörum. Við hjá Basis tókum þá meðvituðu ákvörðun um að gera það ekki til þess að geta veitt viðskiptavinum okkar bestu þjónustu sem völ er á. Með því að vera opnir fyrir öllum þeim vörum(hugbúnaði/vélbúnaði) sem er í boði, og einblína ekki á eitt ákveðið vörumerki, höfum við náð að auka hagkvæmni og lækka kostnað upplýsingakerfa viðskiptavina okkar verulega í mörgum tilfellum.
Basis hefur lagt áherslu á að lágmarka áhættu viðskiptavina sinna af rekstrarstöðvunum með föstum þjónustusamningum sem taka mið af uppitíma og viðbragði. Ekki er greitt sérstaklega fyrir útköll eða þann tíma sem fer í viðgerðir á kerfinu og því geta viðskiptavinir verið vissir um að hagur Basis sé samtvinnaður við þeirra.
Með áherslu á mannvæna starfsmannastefnu hefur Basis tekist að laða til sín marga af bestu tæknimönnum landsins og aukið þannig samkeppnisforskot sitt verulega. Heildstæð tæknileg þekking og reynsla starfsmanna skapa fyrirtækinu jafnframt mikla sérstöðu hér á landi. Sérhæfðir starfsmenn fyrirtækisins eru vottaðir frá fyrirtækjum eins og IBM, Red Hat, Microsoft, Cisco og Fortinet og eru fá fyrirtæki hér á landi sem geta státað af jafn djúpri þekkingu á rekstri Unix og Linux kerfa.
Sem óháðir aðilar getum við með sönnu sagt að við gætum hagsmuna viðskiptavinarins í allri þeirri þjónustu sem við veitum.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

