Þjónusta
Basis veitir viðskiptavinum sínum fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf er snertir kerfis- og tölvurekstur. Metnaður, fagmennska og þekking er ávallt höfð að leiðarljósi.
Fyrirtækið hefur frá upphafi markað sér þá stefnu að vera náinn samstarfsaðili viðskiptavina sinna og lagt áherslu á að veita óháða ráðgjöf með hag viðskiptavinarins í fyrirrúmi.
Öryggisþjónusta. Hjá Basis höfum við öryggið í fyrirrúmi. Við bjóðum uppá ýmiskonar þjónustu er tengist öryggi gagna og upplýsingakerfa í heild sinni.
Ráðgjafarþjónusta. Sérfræðingar Basis hafa áralanga reynslu í öllu er viðkemur upplýsingakerfum og tölvurekstri. Hjá okkur færð þú óháða ráðgjöf með það eitt að markmiði að leysa þínar þarfir á sem hagkvæmastan máta.
Nánari upplýsingar má fá í síma 575-0400 eða með því að senda tölvupóst.

